Annáll fyrir 2007
Síðasta ár var afskaplega gott ár. Ég hóf það í fanginu á Rögga heima hjá foreldrum mínum útí sveit. Fljótlega fór ég aftur suður byrjaði í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Þar bjó ég á heimavistinni sem var á efstu hæð í skólanum. Í húsó var kennt að elda, baka, sauma, prjóna, vefa, hekla, þrýfa, og einnig næringarfræði.
Ekki gerðist mikið markvert í janúar sem ég man eftir, en í febrúar fagnaði systir mín afmælinu sínu með vinum og okkur Rögga á Tapasbarnum niðrí bæ þar sem ég fékk að smakka snigla, kengúru, saltfiskbollur, sverðfisk, hörpuskel o.fl. Það var mjög svo gaman.
Mars gekk bara eins og hann gekk og síðustu helgina í mars var farin ferð vestur (norður) í Húsafell til að fagna afmælum tveggja yndislegra persóna, þ.e. afmælið mitt og afmælið hans Binna! Sumarbústaðar partýið entist heila helgi (eins og gengur og gerist) og þó að pulsurnar hafi verið ríkjandi þá voru einhverjar stelpur þarna líka. Þetta var verst þegar ég var ein í heita pottinum umkringd 7 nöktum strákum.... já svona fer áfengið með mann! Eða kanski menn frekar... það var eithvað sem ég er ekki að bíða eftir að lenda í aftur!
Síðan útskrifaðist ég sem húsmóðir og allt í gúddí og svo kom sumarið og ég var að vinna hjá foreldrum mínum, eins og alltaf! 17. júní kom og reddaði málunum með bíladögum sem voru einstaklega skemmtilegir þrátt fyrir kókista og annað dópað slagsmála lið og ég skemmti mér stórkostlega á Akureyri!
Humarhátíð var á sínum stað þar sem hefði mátt vera betra veður en það vantaði ekki stemminguna og Þráinn og klaka fjallið hans redduðu helginni fyrir okkur!
Ágúst kom með verslunarmannahelgina sem var enn einu sinni haldin á klaustri og það var óendanlega gaman! Heeeellingur af fólki, miiiikið áfengi og bara geggjað stuð! Loks byrjaði ég í FB og fór á listnámsbraut að leika mér og kynntist þar Ísfirðing sem er frekar góður vinur minn núna og einnig fuuuullt af stelpum sem eru á textílhelming listnámsbrautarinnar (ég og Örvar erum á teiknihelmingnum) og ég sé sko ekkert eftir því að hafa byrjað þar í skóla. Svo komst ég að því að Vala vinkona mín síðan í den er ófrísk og á að eiga núna í byrjun febrúar!!
Ég og Röggi byrjuðum að búa í haust og varð lítil bílskúrsíbúð fyrir valinu niðrí miðbæ reykjavíkur. Við eignuðumst tvö gæludýr (því maður verður alltaf að eiga gæludýr!) sem heita Addi og Binni og voru svakalega dúlegir að kíkja í heimsókn.
Í Október bauð vinnan hans Rögga í ferð til Frankfurt, og það var baaaara gaman, gistum á Hilton hótelinu og já... það var frábært.
Í byrjun Nóvember var svo sumarbústaðarferð í tilefni tvítugs afmælis Adda sæta, en þetta var samt eiginlega ekki sumarbústaður, þetta var meira svona risastórt einshæðar íbúðarhús. Þið getið ýmindað ykkur stemminguna þar. Dóra fór líka til Danmerkur um þessa helgi (minnir mig) í uldum hojskule.
Ég náði öllu nema Sögu í skólanum (enda er ég bitur útí hana!) og var meira að segja bara með frekar góðar einkunnir.
Í desember fórum við Röggi á jólahlaðborð á hótel Geysi með vinnunni hans og það var mjöög góð stemming og við smökkuðum þar meðal annars strút, krónhjört, einhvern smáfugl og ég veit ekki hvað og hvað! Svo 19. des fór ég með foreldrum mínum til Danmerkur til að halda jólin hjá Sigrúnu og Skúla og börnunum og Dóra kom frá Uldum og við héldum jólin 8 saman á Molteksvej í Århus. Á leiðinni heim hitti ég svo Ívar á flugvellinum! Og það var geggjað gaman, hef ekki hitt hann síðan 2006! Svo komumst við heim í gegnum vonda veðrið og ég hitti Rögga loksins eftir 10 dag aðskilnað! Það var erfitt...
Ég kvaddi gamla árið í Keflavík hjá tengdaforeldrum mínum með pompi og prakt, það var byrjað að skjóta upp strax eftir spaugstofu og þrátt fyrir veðrið var brjálað mikið af flugeldum! Ég hef aldrei verið annarstaðar en útí sveit þar sem það eru kanski 3-4 að skjóta upp´i einu, í mesta lagi því við erum með sameiginlega brennu og stand fyrir flugelda heima í Svínafelli og já.. það var soooooldið mikið í kef miðað við heima.
Þetta var annáll í stórum dráttum, svo núna vil ég bara segja gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár!
Ps. Besta jólagjöfin í ár og örugglega bara ever var rafmagnsbassinn sem Röggi gaf mér! *RIIIIIIIIIISABROOOOOOOOS!* Hann er bestur!